{"product_id":"graenmeti-2026","title":"Grænmetisáskrift 2026","description":"\u003cp class=\"p1\"\u003eVið bjóðum viðskiptavinum okkar að koma í áskrift að grænmetispoka í sumar og í haust. Áskriftarmódelið (samfélagsstuddur landbúnaður - CSA) er lykillinn að farsællri vegferð gróðrarstöðvarinnar. Með því að rækta fyrir áskrifendur getum við mætt kostnaði við upphaf ræktunartímabilisins, lágmarkað óvissu og minnkað matarsóun þar sem við vitum nákvæmlega hve mikið skal rækta út tímabilið. Við launum áskrifendum okkar skuldbindinguna með því að bjóða upp á góðan afslátt af grænmetinu. Þú getur einnig nýtt áskrifendaafsláttinn þinn í hvert skipti sem þú verslar við okkur árið 2026.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cstrong\u003eHvað er í pokanum?\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eAð minnsta kosti 3.2 kíló (og oft meira!) af fersku og fallegu grænmeti sem ræktað er með sjálfbærum og jarðvegsbætandi aðferðum í aðeins 80 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eYfirlit yfir innihald hvers vikulegs poka (með fyrirvara um smávægilegar breytingar):\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eTómatar: 300-1300 gr\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eKirsuberjatómatar (askja með regnbogablöndunni okkar frægu)\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eeða\/og\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eStórir tómatar (heirloom og buff slicer tómatar)\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eAgúrkur: 300-700 gr\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eStórt laufkálsbúnt (grænkál, svart eða rautt), Chard eða Collard kál: 300-500 gr\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eSalathausar, mesclun salatblanda, mustard greens eða klettasalat: 150-400 gr\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eSætar salat næpur eða\/og radísur: 200-450 gr\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eKryddjurtir (steinselja, basilika, dill, coriander, eða aðrar kryddjurtir): 50-150 gr\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eVorlaukur, ferskur smálaukur: 100-350 gr\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e+ breytilegt úrval af eftirtöldum tegundum, 250-1200 gr:  eggaldin, kúrbítur, blómkál, kál, hvítlaukur, sætar snakkpaprikur, chili pipar, paprikur, beður, broccolini, sellerí, gulrætur, rabarbari, nýjar kartöflur, grænir tómatar, fennel og fleira.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cstrong\u003eHvar og hvernig fæ ég pokana mína?\u003c\/strong\u003e\u003ci\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eVið erum í samstarfi við Pikkoló í Reykjavík og GK Bakarí í Selfossi. Pokinn er sendur út á laugardagsmorgnum og á miðvikudögum á Pikkolóstöð að þínu eigin vali (þú velur stöð þegar þú gengur frá greiðslu) eða til GK Bakarí í Selfossi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eÞú færð skilaboð þegar grænmetispokinn er kominn og þú getur sótt hann samstundis, daginn eftir, eða eftir helgina ef að þú ert í helgarfríi. \u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eSíðasti pokinn kemur 27. octóber.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cstrong\u003eHvað gerist ef ég fer í frí eða get ekki sótt pokann minn?\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eÞú getur frestað einum poka á tímabilinu. Ef þú ert lengi í burtu getur þú gefið pokann þinn til vinar eða fjölskyldumeðlims eða látið okkur vita og við gefum pokann áfram til fjölskyldna sem á þurfa að halda.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e\u003cstrong\u003eHugleiðingar um pokastærðina:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eAðgengi að hollum mat er okkur hjartans mál. Í hverjum poka eru um 35 skammtar (90-100g) af fersku vistræktuðu og næringarríku grænmeti. Landlæknir mælir með að neyta amk 5 skammta (500 gr) af grænmeti og ávöxtum daglega, og þar af ætti amk 250 gr að vera grænmeti. Hér eru nokkrir útreikningar sem sýna hvernig grænmetispokinn getur nýst mismunandi fjölskyldustærðum:\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eTveir fullorðnir fá ráðlagðan dagskammt af grænmeti í 7 daga úr einum poka!\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003e4 manna fjölskylda fær öll innihaldsefni í grænmetisrétt (meðlæti) í 7 daga úr einum poka\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p1\"\u003eEinn fullorðinn grænkeri fær öll innihaldsefni í grænmetiskvöldverð í 7 daga úr einum poka\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003eBorðaðu ferskt, staðbundið, og náttúrulegt grænmeti á hverjum degi!\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\n\u003c\/h3\u003e","brand":"Reykjalundur","offers":[{"title":"One-time bag","offer_id":51338323493028,"sku":"CSA2026-ONETIME","price":9995.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"Weekly bag subscription - Pay in full","offer_id":51338325000356,"sku":"CSA2026-WEEKLY-PIF","price":131134.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Weekly bag subscription - Pay monthly","offer_id":51338324967588,"sku":"CSA2026-WEEKLY-MONTHLY","price":33583.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Every other week subscription - Pay in full","offer_id":51338325065892,"sku":"CSA2026-EOW-PIF","price":71964.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Every other week subscription - Pay monthly","offer_id":51338325033124,"sku":"CSA2026-EOW-MONTHLY","price":18391.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"5 weeks of veggies","offer_id":51338848239780,"sku":"CSA2026-5WEEK","price":47476.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0427\/1262\/9412\/files\/IMG_0688.jpg?v=1754860650","url":"https:\/\/reykjalundurgardyrkja.is\/products\/graenmeti-2026","provider":"Reykjalundur vistræktað grænmeti","version":"1.0","type":"link"}