Skip to product information
1 of 20

2025 Grænmetisáskrift

2025 Grænmetisáskrift

Regular price 8.756 ISK
Regular price 10.945 ISK Sale price 8.756 ISK
Afsláttur! Sold out
VSK/VAT included. Pickup at Reykjalundur í Grímsnesi or your preferred Pikkoló location. Enter your home address at checkout to find a Pikkoló location near you.
Subscription

Grænmetisáskriftin okkar hefst þann 21. júní, 2025

Við bjóðum viðskiptavinum okkar að koma í áskrift að grænmetispoka í sumar og í haust. Áskriftarmódelið (samfélagsstuddur landbúnaður - CSA) er lykillinn að farsællri vegferð gróðrarstöðvarinnar. Með því að rækta fyrir áskrifendur getum við mætt kostnaði við upphaf ræktunartímabilisins, lágmarkað óvissu og minnkað matarsóun þar sem við vitum nákvæmlega hve mikið skal rækta út tímabilið. Við launum áskrifendum okkar skuldbindinguna með því að bjóða upp á góðan afslátt af grænmetinu. Þú getur einnig nýtt áskrifendaafsláttinn þinn í hvert skipti sem þú verslar við okkur árið 2025.

Hvað er í pokanum?

3 kíló af fersku og fallegu grænmeti sem ræktað er með sjálfbærum og jarðvegsbætandi aðferðum í aðeins 80 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.

Yfirlit yfir innihald hvers vikulegs poka (með fyrirvara um smávægilegar breytingar):

Tómatar (800-1050 gr)

Kirsuberjatómatar (askja með regnbogablöndunni okkar frægu)

eða/og

Stórir tómatar (heirloom og buff slicer tómatar)

Agúrkur: 300-800 gr

Stórt laufkálsbúnt (grænkál, svart eða rautt), Chard eða Collard kál: 300-500 gr

Salathausar, mesclun salatblanda, baby mustard greens eða klettasalat: 150-350 gr

Sætar salat næpur eða/og radísur: 200-350 gr

Kryddjurtir (steinselja, basilika, dill, coriander, eða aðrar kryddjurtir): 50-150 gr

Vorlaukur eða ferskur smálaukur: 100-350 gr

+ breytilegt úrval af eftirtöldum tegundum 250-1000 gr eggaldin, kúrbítur, blómkál, kál, hvítlaukur, sætar snakkpaprikur, chili pipar, paprikur, beður, broccolini, sellerí, gulrætur, rababari, nýju kartofler, grænt tómatar, eða fennel.

Tvær áskriftarleiðir í boði: 

Valmöguleiki 1: Vikulegur poki - alls 18 pokar (hefst 21. júní, 2025)

Valmöguleiki 2: poki aðra hvora viku - alls 10 pokar (hefst 28. júní, 2025)

 

Greiðslumöguleikar

(allur Pikkolókostnaður og virðisaukaskattur innifalinn)

Valmöguleiki A: Þú greiðir fyrir alla pokana í einni greiðslu

1A. Heildarverð fyrir 18 poka (vikulega) og þú færð 20 prósent afslátt af pokaverði:

8.756 krónur fyrir pokann (2.918 krónur kílóið), samtals 157.608 krónur

2A. Heildarverð fyrir 10 poka (önnur hver vika) og þú færð 12 prósent afslátt af pokaverði:

9.632 krónur fyrir pokann (3.211 krónur kílóið), samtals 96.320 krónur

 

Valmöguleiki B: Þú skiptir greiðslum í fimm mánaðarlegar greiðslur

ATH: vinsamlega athugið að sendir verða 5 greiðsluseðlar í heimabanka ykkar; við móttöku pöntunar, þann 1. júlí, 1. ágúst, 1. september, og 1. october

1B. Heildarverð fyrir 18 poka (vikulega) og þú færð 18 prósent afslátt af pokaverði:

8.975 krónur fyrir pokann (2.992 krónur kílóið), 32.310 krónur á mánuði í fimm mánuði, samtals 161.550 krónur

2B. Heildarverð fyrir 10 poka (önnur hver vika) og þú færð 10 prósent afslátt af pokaverði:

9.850 krónur fyrir pokann (3.284 krónur kílóið), 19.701 krónur á mánuði í fimm mánuði, samtals 98.505 krónur

 

Hvar og hvernig fæ ég pokana mína?

Við erum í samstarfi við Pikkoló. Pokinn er sendur út á laugardagsmorgnum á Pikkolóstöð að þínu eigin vali (þú velur stöð þegar þú gengur frá greiðslu).

Þú færð skilaboð þegar grænmetispokinn er kominn og þú getur sótt hann samstundis, daginn eftir, eða eftir helgina ef að þú ert í helgarfríi. 

Fyrstu pokarnir verða sendir út laugardaginn 21. júní (28. júní fyrir aðra hvora viku áskrift) og síðasti pokinn kemur laugardaginn 1. nóvember.

Áskrifendur að vikulegum poka fá samtals 18 poka á tímabilinu og áskrifendur að poka aðra hvora viku fá samtals 10 poka á tímabilinu.

Hvað gerist ef ég fer í frí eða get ekki sótt pokann minn?

Þú getur frestað tveimur pokanum á tímabilinu: láttu okkur vita ef þú vilt ekki fá poka sendan til þín og við munum fresta pokanum til annars laugardags að eigin vali. Ef þú ert lengi í burtu getur þú gefið pokann þinn til vinar eða fjölskyldumeðlims eða látið okkur vita og við gefum pokann áfram til fjölskyldna sem á þurfa að halda.

Hugleiðingar um pokastærðina:

Aðgengi að hollum mat er okkur hjartans mál. Í hverjum poka eru um 30 skammtar (100g) af fersku vistræktuðu og næringarríku grænmeti. Landlæknir mælir með að neyta amk 5 skammta (500 gr) af grænmeti og ávöxtum daglega, og þar af ætti amk 250 gr að vera grænmeti. Hér eru nokkrir útreikningar sem sýna hvernig grænmetispokinn getur nýst mismunandi fjölskyldustærðum:

Tveir fullorðnir fá ráðlagðan dagskammt af grænmeti í 6 daga úr einum poka!

4 manna fjölskylda fær öll innihaldsefni í grænmetisrétt (meðlæti) í 7 daga úr einum poka

Einn fullorðinn grænkeri fær öll innihaldsefni í grænmetiskvöldverð í 7 daga úr einum poka

Borðaðu ferskt, staðbundið, og náttúrulegt grænmeti á hverjum degi!

View full details