Skip to product information
1 of 17

Grænmeti 2026

Grænmeti 2026

Step 1: Choose your vegetable bag plan

Pickup day

Saturday orders close at 12:00 noon GMT on the preceding Thursday.

Final Step: Choose the number of vegetable bags per week

Choose 2 or more if you want multiple vegetable bags each pickup day.

Við bjóðum viðskiptavinum okkar að koma í áskrift að grænmetispoka í sumar og í haust. Áskriftarmódelið (samfélagsstuddur landbúnaður - CSA) er lykillinn að farsællri vegferð gróðrarstöðvarinnar. Með því að rækta fyrir áskrifendur getum við mætt kostnaði við upphaf ræktunartímabilisins, lágmarkað óvissu og minnkað matarsóun þar sem við vitum nákvæmlega hve mikið skal rækta út tímabilið. Við launum áskrifendum okkar skuldbindinguna með því að bjóða upp á góðan afslátt af grænmetinu. Þú getur einnig nýtt áskrifendaafsláttinn þinn í hvert skipti sem þú verslar við okkur árið 2026.

Hvað er í pokanum?

Að minnsta kosti 3.2 kíló (og oft meira!) af fersku og fallegu grænmeti sem ræktað er með sjálfbærum og jarðvegsbætandi aðferðum í aðeins 80 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.

Yfirlit yfir innihald hvers vikulegs poka (með fyrirvara um breytingar):

Breytilegt úrval af eftirtöldum tegundum: Kirsuberjatómatar, stórir tómatar (heirloom og buff slicer tómatar), agúrkur, eggaldin, stórt laufkálsbúnt (grænkál, svart eða rautt), collard kál, salathausar, mesclun salatblanda, mustard greens, klettasalat, steinselja, vorlaukur, ferskur smálaukur, kúrbítur, blómkál, kál, hvítlaukur, sætar snakkpaprikur, chili pipar, paprikur, beður, broccolini, sellerí, gulrætur, rabarbari, nýjar kartöflur, grænir tómatar, fennel og fleira.

Hvar og hvernig fæ ég pokana mína?

Við erum í samstarfi við Pikkoló í Reykjavík og GK Bakarí í Selfossi. Pokinn er sendur út á laugardagsmorgnum og á miðvikudögum á Pikkolóstöð að þínu eigin vali (þú velur stöð þegar þú gengur frá greiðslu) eða til GK Bakarí í Selfossi.

Þú færð skilaboð þegar grænmetispokinn er kominn og þú getur sótt hann samstundis, daginn eftir, eða eftir helgina ef að þú ert í helgarfríi. 

Síðasti pokinn kemur í lok október.

Hvað gerist ef ég fer í frí eða get ekki sótt pokann minn?

Þú getur frestað einum poka á tímabilinu. Ef þú ert lengi í burtu getur þú gefið pokann þinn til vinar eða fjölskyldumeðlims eða látið okkur vita og við gefum pokann áfram til fjölskyldna sem á þurfa að halda.

Hugleiðingar um pokastærðina:

Aðgengi að hollum mat er okkur hjartans mál. Í hverjum poka eru um 35 skammtar (90-100g) af fersku vistræktuðu og næringarríku grænmeti. Landlæknir mælir með að neyta amk 5 skammta (500 gr) af grænmeti og ávöxtum daglega, og þar af ætti amk 250 gr að vera grænmeti. Hér eru nokkrir útreikningar sem sýna hvernig grænmetispokinn getur nýst mismunandi fjölskyldustærðum:

Tveir fullorðnir fá ráðlagðan dagskammt af grænmeti í 7 daga úr einum poka!

4 manna fjölskylda fær öll innihaldsefni í grænmetisrétt (meðlæti) í 7 daga úr einum poka

Einn fullorðinn grænkeri fær öll innihaldsefni í grænmetiskvöldverð í 7 daga úr einum poka

Borðaðu ferskt, staðbundið, og náttúrulegt grænmeti á hverjum degi!

View full details