Stakur grænmetispoki
Stakur grænmetispoki
Couldn't load pickup availability
Stakur grænmetispoki (enginn áskriftarskuldbinding/áskriftarafsláttur)
Það er einnig í boði að panta stakan poka hjá okkur. Verð á stökum poka er 10.945 krónur fyrir 3 kíló poka (3.648 kr/kg).
Afhending og virðisaukaskattur er innifalin í verðinu.
Staki grænmetispokinn okkar inniheldur sama grænmeti og áskrifendur okkar fá í þeirri viku sem þú pantar pokann. Einföld og þægileg leið til að nálgast allt það ferskasta grænmeti sem er í boði hverju sinni án þess að skuldbinda þig í áskrift.
Hvað er í pokanum?
Að minnsta kosti 3 kíló (og oft meira!) af fersku og fallegu grænmeti sem ræktað er með sjálfbærum og jarðvegsbætandi aðferðum í aðeins 80 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.
Yfirlit yfir innihald hvers vikulegs poka (með fyrirvara um smávægilegar breytingar):
Tómatar: 300-1050 gr
Kirsuberjatómatar (askja með regnbogablöndunni okkar frægu)
eða/og
Stórir tómatar (heirloom og buff slicer tómatar)
Agúrkur: 300-800 gr
Stórt laufkálsbúnt (grænkál, svart eða rautt), Chard eða Collard kál: 300-500 gr
Salathausar, mesclun salatblanda, baby mustard greens eða klettasalat: 150-350 gr
Sætar salat næpur eða/og radísur: 200-350 gr
Kryddjurtir (steinselja, basilika, dill, coriander, eða aðrar kryddjurtir): 50-150 gr
Vorlaukur eða ferskur smálaukur: 100-350 gr
+ breytilegt úrval af eftirtöldum tegundum, 250-1000 gr: eggaldin, kúrbítur, blómkál, kál, hvítlaukur, sætar snakkpaprikur, chili pipar, paprikur, beður, broccolini, sellerí, gulrætur, rabarbari, nýjar kartöflur, grænir tómatar, fennel og fleira.
Hvar og hvernig fæ ég pokana mína?
Við erum í samstarfi við Pikkoló í Reykjavík og GK Bakarí í Selfossi. Pokinn er sendur út á laugardagsmorgnum og á þriðjudögum á Pikkolóstöð að þínu eigin vali (þú velur stöð þegar þú gengur frá greiðslu) eða til GK Bakarí í Selfossi.
Þú færð skilaboð þegar grænmetispokinn er kominn og þú getur sótt hann samstundis, daginn eftir, eða eftir helgina ef að þú ert í helgarfríi.
Hugleiðingar um pokastærðina:
Aðgengi að hollum mat er okkur hjartans mál. Í hverjum poka eru um 30 skammtar (100g) af fersku vistræktuðu og næringarríku grænmeti. Landlæknir mælir með að neyta amk 5 skammta (500 gr) af grænmeti og ávöxtum daglega, og þar af ætti amk 250 gr að vera grænmeti. Hér eru nokkrir útreikningar sem sýna hvernig grænmetispokinn getur nýst mismunandi fjölskyldustærðum:
Tveir fullorðnir fá ráðlagðan dagskammt af grænmeti í 6 daga úr einum poka!
4 manna fjölskylda fær öll innihaldsefni í grænmetisrétt (meðlæti) í 7 daga úr einum poka
Einn fullorðinn grænkeri fær öll innihaldsefni í grænmetiskvöldverð í 7 daga úr einum poka
Borðaðu ferskt, staðbundið, og náttúrulegt grænmeti á hverjum degi!
--
This week's veggie bag (no subscription)
10.945 ISK per 3 kg (at least!) bag with no commitment to a subscription.
No extra charges: Pickup and VAT tax are included in this price.
We will make a fresh harvested veggie bag for you this week that is the same as our subscribers receive. A convenient option for fast pickup without committing to a subscription. You get the same as subscribers, this week's bag of ecologically grown, in-season vegetables harvested just for you.
Share







